Sigríður Matthildur Aradóttir lauk á dögunum kuðungsígræðslu í hægra eyra og ræðir málið við Fréttablaðið í dag.
Sigríður lagði Sjúkratryggingar Íslands í sumar vegna aðgerðarinnar og vonar að það hafi verið fordæmisgefandi. Hún hlakkar mest til að hætta að segja ha.
„Ég er mest spennt að fá að vera meira með og þurfa ekki alltaf að segja „ha?“ og ruglast ekki og trúðu mér, misskilja og segja vitlaus orð og alls konar. Og svo bara að fara í leikhús og njóta þess að heyra allt saman,“ segir Sigríður.
Hún er ekki viss um að mál sitt verði fordæmisgefandi en vonar það.
„Sjúkratryggingar Íslands eru ótrúlega merkilegt fyrirbæri. Ég hélt að þetta yrði fordæmisgefandi en svo er víst ekki. Ég ætla samt bara að leyfa mér að trúa því, af því að mér finnst hitt algjört svindl,“ segir Sigríður.
Viðtalið við Sigríði í heild sinni má lesa hér.