Brynjar Níelsson skrifar:
Er svolítið uggandi yfir neikvæðu viðhorfi til atvinnulífsins. Sýnist það nálgast að vera á pari við stjórnmálin.
Löngum hefur verið svo, að þeir stjórnmálamenn sem hafa lagt mikla áherslu á að skapa betri rekstrarskilyrði fyrirtækja, eru sakaðir um sérhagsmunagæslu. Eins og margir líti svo á að hagur fyrirtækja sé á kostnað almennings.
Nú er búið að stofna heilan stjórnmálaflokk kringum þessa dellu og kjósa það fólk til forystu í verkalýðsheyfingunni.
Síðustu vikur höfum við séð hvað hagsmunir atvinnulífsins eru samtvinnaðir hagsmunum almennings. Samt virðist það ekki breyta afstöðu margra. Hneykslast þeir yfir því að ríkið skuli styðja við atvinnulífið í stað þess að fjölga ríkisstarfsmönnum.
Ástæða er til að benda þeim á að ferðaþjónustan var orðin stærsti atvinnuvegur þjóðarinnar og átti mestan þátt í því að rífa okkur upp eftir bankahrunið. Það var vegna þess að fjöldi athafnasamra karla og kvenna tók áhættu og lagði allar eignir sínar undir.
Ætla að nota tækifærið og taka hatt minn ofan fyrir þessu fólki.