Bubbi vill ekkert með Eirík hafa: „Vil ekki vera nálægt honum“ – Jakob tekur upp hanskann

Heitar umræður sköpuðust á Facebook-vegg Jakobs Bjarnar um afar umdeilda „frétt“ Eiríks Jónssonar á vefsíðu hans er fjallaði um meint ástarsamband Áslaugar Örnu dómsmálaráðherra og Kristjáns Þórs Magnússonar bæjarstjóra á Húsavík.

Jakob tók upp hanskann fyrir Eiríki, sem hefur hlotið mikla gagnrýni fyrir „fréttaflutning“ sinn líkt og Hringbraut hefur greint frá, í færslu á Facebook-síðu sinni. Undir færslunni sköpuðust miklar og heitar umræður ýmissa nafntogaðra einstaklinga.

Þar rann Jakobi blóðið til skyldunnar og greip til varna fyrir kollega sinn og sagði: „Ég tek eftir því að enn blæs um hann Eirík minn Jónsson vegna einhverra tíðinda sem hann flutti af skilnaðarmálum á sinni veffréttasíðu. Ók. Þetta er í raun og veru ekki flókið. Ef fjölmiðlar vilja segja frá brúðkaupum og því að eitthvað fólk sé komið í samband þá verður auðvitað að segja frá sambandsslitum líka.“

Hann heldur áfram: „Þetta liggur í augum uppi og það er bölvuð hræsni að vilja fordæma það. Það veit sá sem allt veit að sjálfur er ég harla óáhugasamur um slíkar fréttir, í sjálfu sér en hjá því verður ekki litið að þær geta vissulega sagt talsvert mikla sögu í ættasamfélaginu. Íslendingasögurnar byggja beinlínis á þessu,“ segir Jakob.

Hann vill einfaldlega meina að fólk lesi það sem það vill lesa, og slíkar fréttir séu einfaldlega vel lesnar: „Fjölmiðlar eru nokkurn veginn eins og fólk vill hafa þá, eðli máls samkvæmt, en ég kalla eftir vitrænu aðhaldi, for crying out loud. Ef fólk hefur engar athugasemdir fram að færa við brúðkaupsfréttir, og ég veit svo sem ekki af hverju menn ættu að vera að agnúast út í þær, þá í guðanna bænum sleppið því að gera ykkur merkileg með því að fordæma skilnaðarfréttir,“ segir Jakob.

Þessu svarar Helgi Hrafn Gunnarsson, fyrrverandi þingmaður Pírata. Hann er aldeilis ekki sammála Jakobi og segir vinnubrögð Eiríks skammarleg: „Það er engin hræsni að fordæma það. Þetta er algjörlega pathetic blaðamennska, gerð einungis til að svara pathetic forvitni fólks á einkalífi annarra. Don't get me wrong, ég er fyrstur upp á dekk til að verja rétt fólks til að fjalla um þessi mál, en ég ætla að kalla það pathetic að svala þessari pathetic eftirspurn. Náðarsamlegast nýti tjáningarfrelsi mitt til þess.“

Það stendur ekki á svörum hjá Jakobi sem sparar ekki stóru orðin og segir Helga einfaldlega hafa rangt fyrir sér: „Já, en þetta er bara einfaldlega rangt hjá þér, Helgi. Þetta getur, eins og ég kem inná, sagt sögu sína. Og haft margvísleg afleidd áhrif. Þetta getur til að mynda varðað hæfi í ýmsum tilvikum. Osfrv.“

Helgi lætur Jakob ekki þagga niður í sér og svarar fullum hálsi: „Þú veist mætavel að það er ekkert málið. Tengsl geta verið fréttnæm þegar þau hafa áhrif á t.d. hæfi fólks, en þá er það ekki sambandið sem skiptir neinu máli heldur hæfið. Eiríkur Jónsson sjálfur fjallar "um fólk", eins og hann orðar það sjálfur, og aðferðin sem hann notar, er að svala aumkunnarverðum losta fólks fyrir því að kíkja inn í einkalíf annarra,“ segir Helgi.

Hann heldur áfram: „Það er yfirþyrmandi meirihlutinn af þessari fáránlegu umfjöllun og þú veist það mætavel. Gott og vel ef einhver 5% af henni hafa síðan einhverjar afleiðingar eða koma einhverjum öðrum við. Þá má skera restina af. Þú'st, eða ekki. Ég er ekkert að segja að það þurfi að banna þetta. Mér finnst þetta bara heimskulegt og asnalegt og ætla að segja það upphátt,“ segir Helgi.

Tónlistargoðsögnin Bubbi Morthens svarar einnig færslu Jakobs. Hann og Eiríkur Jónsson hafa eldað saman grátt silfur í gegnum tíðina. Bubbi kærði Eirík árið 2005 fyrir fyrirsögnina Bubbi fallinn! í tímaritinu Hér & nú. Ekki náðust sættir fyrr en fimm árum seinna, en svo virðist sem Bubbi sé ekki búinn að fyrirgefa Eiríki að fullu.

Hann svaraði Jakobi á þennan veg: „held þetta snúist um karma vinur. Eiríkur hefur unnið fyrir þessu,“ segir Bubbi.

Jakob gefst ekki upp og vill stilla til friðar: „Við þurfum nú að fara halda sáttafund, milli þín og Eiríks. Ég skal taka að mér hlutverk sáttasemjarans,“ segir Jakob.

Bubba lýst ekkert á það og vill ekkert með Eirík hafa: „Nei takk, hann hefur vonda orku, vil helst ekki vera nálægt honum,“ segir Bubbi Morthens.