Bubbi Morthens, eins ástsælasti tónlistarmaður þjóðarinnar, veltir því upp á Facebook hvort hann eigi að „þora“ að spila blús aftur.
„Ætli maður þori að spila blús framar ef maður skildi móðga einhvern,“ skrifar Bubbi á Facebook.
Ekki er nákvæmlega vitað hvað hann eigi við en það má ætla að hann sé að skrifa þetta í samhengi við sýningu Íslensku óperunar á Madame Butterfly. Sýningin hefur verið sökuð um menningarnám þar sem hvítt fólk leikur asíubúa.
Rithöfundurinn Hallgrímur Helgason segir við Bubba að „Hvítingjablús“ sé samt hræðileg tónlist
Bubbi svara því neitandi um hæl: „Nei en hann hefur annað nafn sem er kántrí, Bólu Hjálmar er einn sá rosalegasti blúsmaður sem sögur fara af hvítir menn hafa margir náð að túlka sársaukann feikna vel.“
Hjálmar Hjálmarsson sem hefur meðal annars leikið Bubba í áramótaskaupinu segir að „Ísbjarnablús sleppur“ .. heldur hann.
Guðmundur Andri Thorsson leggur einnig orð í belg og segir: „Ég er alltaf að bíða eftir því að þú gerir blúsplötu. Þú með gítarinn. Ég er með stórt blússafn á Spotify. Þar eru bara tveir hvítir blússöngvarar. Þú ert annar þeirra.“