Bubbi varar við gervi-Bubba: Segir óprúttna aðila hafa herjað á konur og blekkt fólk

Tónlistarmaðurinn ástsæli Bubbi Mortheins varar við gervisíðum á netinu sem þykjast vera hann sjálfur. Hann bendir á að Instagram-síðan sín sé auðkend með blári stjörnu.

„Það eru nokrar síður í gangi með myndum af mér fólkinu mínu og óprútnir aðilar blekja fólk biðja um pening,herja á konur, sumar jafnvel fallið fyrir þessu tapað pening og blövað mér í sand og ösku.“ segir Bubbi á Facebook.

Hann bætir við að svona hafi ástandið verið lengi, en nú fari það versnandi.

„Þetta er búið að vera svona í nokkur ár en hefur aukist. Endilega meldið þetta hyski.“