Bubbi um á­fengi í Hlíðar­fjalli: „Al­ger­lega sturluð hug­mynd“

Tón­listar­maðurinn Bubbi Morthens er allt annað en sáttur með vilja meiri­hluta bæjar­ráðs Akur­eyrar sem vill láta skoða hvort á­fengis­sala á skíða­svæðinu verði heimiluð til lang­frama.

„Hverjum dettur í hug slík fásvinna að bjóða börnum upp á þá á­hættu að fólk sem hefur sett á­fengi inn fyrir varir hvað þá drukknir ein­staklingar séu í brekkunni?“ Spyr Bubbi í um­mælum við frétt Frétta­blaðsins um málið.

Þetta er al­ger­lega sturluð hug­mynd,“ segir Bubbi.

Skoðanir eru skiptar meðal bæjar­búa en beðið er um­sagna. Heit um­ræða fer fram á sam­fé­lags­miðlum eins og Frétta­blaðið hefur fjallað um , þar sem Akur­eyringar eru ýmist með eða á móti.

Sól­ey Björk Stefáns­dóttir, full­trúi VG í bæjar­ráði, er eini full­trúi ráðsins sem telur að á­fengi eigi ekki að selja í Hlíðar­fjalli. Hún sagði í við­tali við Frétta­blaðið að „rosa­leg fyllerí“ hefðu orðið í fjallinu þegar leyft var um tíma í fyrra­vetur að selja á­fengi.