Ástsælasti tónlistarmaður Íslendinga, Bubbi Morthens, veltir fyrir sér hvernig samfélagið eigi að ganga upp á meðan hátt í 800 manns á dag smitast og mun fleiri enda í sóttkví.
„Hvernig ætla menn að láta þjóðlífið ganga fjöldi fær ekki að vinna mörg fyrirtæki eru lömuð vegna aðgerða yfirvalda andleg heilsa fer hrakandi drykkja og ofbeldi hefur aukist í covitinu frelsið hefur verið tekið af fólki smátt og smátt og alltaf eru svörin þau sömu veiran er óútreikanleg,“ skrifar Bubbi og bætir við að færri og færri veikjast nú en áður og afar fáir eru að deyja vegna veirunnar.
„Við vitum heilbrigðis kerfið er ekki í stakk búið til þess að takast á við þetta. Við höfum vitað það í ár. Hvernig ætla menn að tækla þetta og hver eru plönin til þess að koma hjólum lífsins í gang? svörin eru fá jafnvel engin enn sem komið er,“ skrifar Bubbi.