Tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens segir örlög ljóðskáldsins unga Yahya Hassan vera sorgleg. Hassan, sem var Dani, fannst látinn á heimili sínu í Árósum í gær.
„Ofbeldi í æsku drepur fólk. Hann var geggjað ljóðskáld, hann var varla byrjaður,“ segir Bubbi. Guðmundur Andri Thorsson, rithöfundur og þingmaður, tekur undir með Bubba og segir að hann hafi haft ótrúlegt vald á ljóðlistinni en svo lítið í lífi sínu.
Hassan kom fram á sjónarsviðið þegar fyrsta ljóðabók hans kom út árið 2013. Þar lýsti hann uppvexti sínum í innflytjendahverfi í Árósum þar sem ofbeldi var daglegt brauð.
Hassan kom til Íslands árið 2014 til þess að kynna bók sína. Síðasta bók hans, Yahya Hassan 2, sem gefin var út undir lok síðasta árs, var tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs.
Jóhann Páll Valdimarsson, fyrrverandi bókaútgefandi, segir augljóst að Hassan hafi verið illa skaddaður á sálinni þegar hann kom til Íslands vegna útgáfu fyrri bókarinnar. „Börn sem lenda í ofbeldi í æsku fá enga ása á hendi,“ svarar Bubbi á móti.
Hassan hefur komist í kastljós fjölmiðla fyrir ýmsar sakir en þá helst gagnrýni sína á íslamstrú. Þá var hann dæmdur til tveggja ára fangelsisvistar fyrir að skjóta í fót unglingspilts og árið 2018 var honum svo gert að sækja geðræna hjálp fyrir 42 brot sem hann játaði að hafa framið. Þau brot fólu flest í sér einhvers konar ofbeldisbrot og eignatjón.
Hassan var 24 ára þegar hann lést.