Tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens hefur oft verið ánægðari með Samfylkinguna en akkúrat þessa dagana. Bubbi lætur þingmann Samfylkingarinnar, Guðmund Andra Thorsson, finna fyrir því í athugasemd við færslu Guðmundar Andra á Facebook í dag.
Hringbraut greindi frá því í vikunni að margir innan Facebook-samfélags Samfylkingarinnar á Facebook væru forviða yfir nýjum samskiptareglum í hópnum. Nú þurfa til dæmis stjórnendur að samþykka nýjar færslur frá notendum sem þýðir að engin innlegg birtast án samþykkis stjórnenda hópsins sem koma úr framkvæmdastjórn Samfylkingarinnar.
Þá eru ómálaefnalegar athugasemdir ekki leyfðar og ekki heldur óviðeigandi, stuðandi, hæðnisfullar eða meiðandi athugasemdir. Þetta fór öfugt ofan í suma og var Karl Th. Birgisson í hópi þeirra sem gagnrýndu reglurnar. Guðmundur Andri deildi innleggi á eigin Facebook-síðu sinni í dag – innleggi sem hann hafði fengið birt í fyrrnefndum Facebook-hópi.
Þar fagnaði hann nýju reglunum þó hann viðurkenndi að vissulega þyrfti hugsanlega að endurskoða eitt og annað í þeim, til dæmis veltir hann fyrir sér hvernig hægt er að banna hæðni.
„Vinur er sá er til vamms segir – en maðurinn lifir ekki á súrmat einum saman. Það gengur naumast að einskorða tal sitt við vammir og skammir, eigi vináttan að lifa. Maður þarf stundum líka að koma með uppbyggileg og skemmtileg innlegg. Ég er ekki að biðja um meðvirkni – en stundum svolítið meiri samvirkni.“
Bubbi Morthens var ekki lengi að skrifa athugasemd við færslu Guðmundar Andra og sagði meðal annars: „Þessar reglur er flokknum til háðungar, ertu ekki að grínast hvað þetta er lúðalegt?“
Guðmundur Andri svaraði Bubba svona: „Mestanpart eru þetta nú eðlilegar kröfur sem við gerum í samskiptum fólks: ekki ljúga, ekki vera með skæting, ekki snúa út úr, ekki særa, ekki vera með stæla ... sambærilegar reglur og á ótal vefsvæðum. Já, og mannlífinu yfirleitt.“
Bubbi sagði að þetta væri nú allt partur af því að vera mannlegur og tók Guðmundur Andri vissulega undir það að hluta. „En samt setjum við reglur um skæting, einelti, lygar og þvíumlíkt í flestum mannlegum samskiptum. Menn eru sumir að láta eins og Berlínarmúrinn hafi verið endurreistur og Stasi gangsett – en það er nú ofleikur.“
Þetta er í annað sinn á skömmum tíma sem Bubbi hnýtir í Samfylkinguna. Hringbraut sagði frá því þann 10. mars síðastliðinn að Bubbi hefði hótað því að snúa baki við flokknum. Var það eftir að Samfylkingin ákvað að færa einmitt Guðmund Andra niður í annað sætið á lista Samfylkingarinnar í Kraganum og hleypa Þórunni Sveinbjarnardóttur, formanni BHM, í efsta sætið.
„Að færa Guðmund Andra Thorsson niður um sæti er vægast sagt misráðið og ef að verður mun ég, Logi Einarsson, færa mitt sæti niður og ekki kjósa Samfó. Þannig líður mér með þetta,“ sagði Bubbi við það tilefni.