Tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens er ekki beint þekktur fyrir að vera gallharður stuðningsmaður Sjálfstæðisflokksins.
Bubbi sá þó ástæðu til að stíga fram á Instagram í gær og lýsa yfir stuðningi við Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur dómsmálaráðherra sem býður sig fram í 1. sætið á lista Sjálfstæðisflokksins í öðru hvoru Reykjavíkurkjördæminu.
„Það vita nú allir að ég er ekki glerharður Sjálfstæðismaður,“ sagði Bubbi og bætti við að hallaðist frekar að Samfylkingunni eða Viðreisn. Hann lofaði svo Áslaugu Örnu í hástert.
„Það er ung kona í Sjálfstæðisflokknum að bjóða sig fram í 1. sæti í Reykjavíkurkjördæmunum, Áslaug arna. Þau ykkar sem ætla að kjósa, þetta er framtíðarleiðtogi. Mér líst rosalega vel á þessa stelpu. Hún er ekki að biðja mig að gera þetta! Ég er að gera þetta algjörlega að sjálfsdáðum, kjósið hana!“