Tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens slær á létta strengi á Twitter-síðu sinni í dag og kemur með áhugavert innlegg í umræðuna um bjórsölu á Laugardalsvelli.
Eins og greint var frá á mánudag var sala á bjór heimiluð á landsleik Íslands og Albaníu og var það í fyrsta skipti sem áfengissala fer fram á vellinum í tengslum við landsleik í fótbolta.
Margir fögnuðu þessari ákvörðun enda leyfa nágrannalönd okkar sölu á áfengi á íþróttaviðburðum sem þessum, Færeyingar sem dæmi. Aðrir gagnrýndu þetta þó eins og gengur og gerist.
Bubbi blandar sér í umræðuna á Twitter og segist styðja það að jónur verði seldar á landsleikjum. Það myndi að minnsta kosti þagga niður í víkingaklappinu sem Bubbi virðist orðinn þreyttur á.
Ég styð það jónur verði seldar á fótbolta landsleikjum það væri geggjað að heyra eitt langt vááááá í staðinn fyrir þetta huhuhuh
— Bubbi Morthens (@BubbiMorthens) June 8, 2022