Karl Th. Birgisson, rithöfundur og ritstjóri Herðubreiðar, er í mínus eftir að hafa birt falsaðan texta sem hann sagði að væri eftir Birgi Ármansson, þingmann og formann undirbúningsnefndar.
Karl hefur talað um falsið sem „stílæfingu“ sem hafi heppnast of vel.
Meðal þeirra sem stappa stálinu í Karl er sjálfur Bubbi Morthens sem hefur greinilega gaman af óförunum sem Karl kom sér í sjálfur.
„Við gerum allskonar heimskulega hluti og það er mannlegt að réttlæta það líka með heimskulegum útskýringum þannig er það bara,“ segir Bubbi hress.