Bubbi spyr ráð­herra um fjölda­tak­markarnir: „500 manns á grímu það er ekki mikið“

Bubbi Morthens, velti því fyrir sér í dag á face­book af hverju fjölda­tak­markanir á Ís­landi séu ekki sam­bæri­legar og þær tak­markanir sem gilda á Norður­löndunum.

„Í fyrsta lagi greinir NRK frá því að Erna Sol­berg for­sætis­ráð­herra hafi á blaða­manna­fundi á fimmtu­daginn kynn þá til­slökum að 5.000 manns fái að koma sam­an á við­burðum inn­an­­dyra og 10.000 ut­an­­dyra, í stað 3.000 og 7.000 áður. Reynd­ar þurfa við­stadd­ir að geta fram­vísað vott­orði um báðar bólu­­setn­ing­ar og sitja í föst­um og út­hlutuðum sæt­um,“ skrifar Bubbi.

Við þetta má bæta að Danir hafa sagt veiruna ekki lengur sam­fé­lags­mein og af­létta öllum fjölda­tak­mörkunum á föstu­daginn.

Bubbi beinir spurningu sinni að Svan­dísi Svavars­dóttur, heil­brigðis­ráð­herra, Katrínu Jakobs­dóttur, for­sætis­ráð­herra, Þor­gerði Katrínu Gunnars­dóttur, for­manni Við­reisnar og Þór­dísi Kol­brúnu Reyk­fjörð Gylfa­dóttur, iðnaðar- og ný­sköpunar­ráð­herra.

„500 manns án grímu og án hamla, það er ekki mikið,“ skrifa Bubbi að lokum.