Bubbi slapp vel frá slysi: „Ég brann alveg sko, en þetta var ekkert al­var­legt“

Tón­listar­maðurinn Bubbi Morthens slapp vel úr ó­happi með gas sam­kvæmt frétt Frétta­blaðsins í morgun.

Bubbi gerir sjálfur lítið úr ó­happinu sem varð þegar hann var að eiga við gas og sprakk í kjöl­farið út í nokkuð þrá­látum orð­rómi um að ný­lega hefði hvorki meira né minna en kviknað í sjálfum Bubba Morthens þegar hann var að grilla og hann væri nokkuð illa brunninn.

„Ég var ekkert að grilla, ég var að fylla á brennara og það lak og það kom svona ein­hver eld­súla. Það er ekkert svo langt síðan,“ segir Bubbi.

Þar sem er reykur er þó yfir­leitt eldur og kjafta­sagan um brenndan Bubba á sér ein­hverja stoð í raun­veru­leikanum þótt hún sé veik og lítill neisti hafi orðið að full miklu báli.

„Þetta er bara eins og gengur og gerist. Það eru fals­fréttir alls staðar,“ segir Bubbi og skilur vel að mörgum hafi þótt skjóta skökku við að hann væri að grilla í febrúar.

„Ég brann alveg sko, en þetta var ekkert al­var­legt,“ segir Bubbi og gerir grín að flökku­sögunni. „Auð­vitað segir fólk þetta: Jú, jú. Bubbi Morthens, það kviknaði í honum. En jæja, ókei, á­fram Úkraína!“