Bubbi skilur ekkert í jólalagageðveiki Íslendinga: „Hversu mikið er hægt að blóðrunka…?

Tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens er ef til vill þekktur fyrir flest annað en jólalög. Hann stígur nú fram á Twitter og hristir beinlínis hausinn yfir jólalagablæti okkar Íslendinga.

„Hvað gerðist með okkur og jólalagageðveikina? Hversu mikið er hægt að blóðrunka jólalagaspilun í útvarpi 24-7 fram að aðfangadag. Þegar klukkan er 12 á hádegi 7. des er aldan orðin svo stór að maður er komin með jólalög í lungun. Annars góður,“ segir Bubbi á Twitter.

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Bubbi tjáir sig um mikla ást Íslendinga á jólalögum og öðru sem við kemur þessari hátíð ljóss og friðar. Í viðtali við RÚV árið 2016 sagði hann að Íslendingar væru orðnir heimsmeistarar í „jólarunki“.

„Þetta er jólarunk, þetta er orðið bara geggjun eins og fótanuddtækin á sínum tíma. En svona er þetta, allir vilja græða á jólunum,“ sagði hann.