Bubbi sendir ára­móta­kveðju: „Fögnum hverjum andar­drætti“

Tón­listar­maðurinn Bubbi Morthens sendi lands­mönnum ára­móta­kveðju á Face­book í dag þar sem hann þakkar öllum fyrir stuðninginn á árinu sem er að líða.

„Þetta ár hefur verið mér gott á svo marga vegu. Nýtt heimilli á fal­legum stað við fal­lega náttúru.Allt fólkið mitt við góða heilsu engin fengið veiruna enn­þá. ný Plata kom út og ljóða­bók. Lífið er alltaf núna maður gleymir því svo oft. Ég veit ekki hvernig komandi ár mun reynast okkur og verða, ég vona auð­vitað það besta,“ skrifar Bubbi.

„Vorið er minn tími hefur alltaf verið ég er hlut­laus gagn­vart vetrinum en mikið óska ég þess að lífið verði öllum milt og gott að plágan hverfi að frelsið komi til okkar aftur.Að til­veran verði líkust því sem við áttum við að venjast áður en veiran kom í bæinn,“ bætir hann við.

Hann segir lífið vera æðis­legt og stór­kost­legt. „fögnum hverjum andar­drætti hverjum degi hverri mínútu. Takk fyrir stuðningin á árinu sem er að líða ást og friður til allra,“ skrifar hann að lokum áður en hann deilir laginu Gaml­árs­kvöld sem hann gaf út árið 2019.