Um helgina birtist grein á vefsíðu Karls Th. Birgissonar, Herðubreið.is, sem bar heitið „Gögnum Birgis Ármannssonar lekið.“ Karl sagðist hafa drög að áliti Birgis Ármannssonar, formanns undirbúningsnefndar kjörbréfanefndar sem rannsakar meðferð kjörgagna í Norðvesturkjördæmi.
Karl bar sig afar illa á heimasíðu sinni og þótti afar miður að greina frá þessu, en fannst hann þó skyldugur til þess. Sagði hann „Herðubreið er meinilla við svona leka, en í trausti þess að almannahagsmunir gangi framar prívathagsmunum Birgis, verða drögunum nú gerð svolítið skil.“
Fréttablaðið fékk álit Birgis sjálfs á þessum merkilegu atburðum, en hann var eins slakur og hann er vanur að vera og kvað gögnin vera eintóman hugarburð Karls – Birgir væri ekki einu sinni búinn að rita niður nein drög svo þetta gæti hreinlega ekki staðist.
Karl hefur nú viðurkennt að um falsfrétt var að ræða. Engin innistæða reyndist í „fréttinni“ og var hún hrein og klár uppspuni – hreinlega lygi.
Karl biðst afsökunar á Facebook-síðu sinni:
„Nú vil ég biðja lesendur mína afsökunar. Textinn í meðfylgjandi grein er hreint ekkert eftir Birgi Ármannsson. Í viðbrögðum sínum hafði hann nákvæmlega rétt fyrir sér: Þetta er „uppspuni“ og „Karl er að skemmta sér,“ segir Karl en sér þó ekki meira eftir þessu en það að hann hefur ekki enn tekið greinina niður.
Hann segir ástæðuna að baki lygagreininni vera sú að honum leiddist: „Mér leiddist og kom í hug hvort ég gæti ekki aukið Birgi leti með því að skrifa fyrir hann drög að nefndaráliti. Svona er maður stundum óþarflega greiðvikinn. Ég hef fylgzt með Birgi í áratugi og taldi í yfirlæti mínu nánast formsatriði að skrifa upp í hann texta sem passaði bæði að efni og stíl. Svo ég prófaði.“
Karli þykir miður að Fréttablaðið hafi „stigið ofan í holuna sem ég gróf“ en raunin er sú að Karl laug að blaðamönnum Fréttablaðsins: „Núnú. Þessi stílæfing virðist hafa verið aðeins of vel heppnuð. Sérstaklega þykir mér leitt að vinir mínir á Fréttablaðinu hafi stigið ofan í holuna sem ég gróf. Viðbrögð þeirra og annarra benda þó til þess að textinn hafi ekki verið alónýtur. Það nærir hégóma minn,“ segir Karl.
Hann veltir upp spurningu: „Einni spurningu er þó ósvarað: Hvers vegna leið mér svona notalega inni í kollinum á Birgi Ármannssyni þessa stund sem tók að skrifa álitsdrögin? Ég ætla að velta henni fyrir mér aðeins lengur,“ segir Karl.
Falsfrétt Karls hefur vakið hörð viðbrögð enda stríðir það gegn heilindum fjölmiðlamanna að birta slíka „frétt.“
Bubbi Morthens er einn af þeim sem lætur Karl heyra það – og það undir færslu Karls: „Við gerum allskonar heimskulega hluti og það er mannlegt að réttlæta það líka með heimskulegum útskýringum þannig er það bara,“ segir tónlistargoðsögnin geðþekka.