Bubbi segir þetta galið: „Ertu ekki að grínast? Ungt fólk gert að glæpamönnum“

Tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens segir að löngu sé kominn tími á að lögleiða gras. Bubbi gerir frétt Vísis að umtalsefni á Facebook-síðu sinni en í henni var greint frá því að Landsréttur hefði staðfest dóm yfir manni sem staðinn var að því að rækta kannabisplöntur í íbúð á Akureyri.

Maðurinn ræktaði 14 kannabisplöntur ásamt öðrum en sjálfur neitaði hann að vísu sök. Sagðist aðeins hafa verið að aðstoða við að flytja plönturnar þegar lögregla stöðvaði hann og félaga hans við að bera kannabisplöntur út í sendibíl. Var fimmtán mánaða fangelsisdómur héraðsdóms staðfestur í Landsrétti.

Bubbi er óhress með þetta og virðast margir vera sammála honum.

„15 mánuði, ertu ekki að grínast? Ungt fólk gert að glæpamönnum og fyrir það eitt að rækta arfa sem má reykja. Þetta er galið. Lögleiða gras og hætta þessu að dæma ungt fólk í fangelsi. Hvert landið eftir öðru í kringum okkur er að lögleiða gras,“ segir hann og bætir við að þessar þjóðir séu búnar að fatta að þetta er ekki að virka.

Undir þetta taka ýmsir, til dæmis tónlistarmaðurinn Pálmi og fjölmiðlamaðurinn Egill Helgason. „Skömm að þessu,“ segir Pálmi á meðan Egill segir: „Mjög vafasamt!“