Bubbi sár og hótar að snúa baki við Samfylkingunni: „Ég er gjörsamlega bit“

Tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens er allt annað en sáttur við þá ákvörðun Samfylkingarinnar að færa Guðmund Andra Thorsson niður í annað sætið á lista Samfylkingarinnar í Kraganum.

Þórunn Sveinbjarnardóttir, formaður BHM og fyrrverandi þingmaður og ráðherra flokksins, verður í oddvitasætinu. Guðmundur Andri tjáði sig um tíðindin í morgun og sagðist víkja sáttur. „Hún verður öflug í fyrsta sæti. Og ég verð öflugur í öðru sæti,“ sagði Guðmundur Andri en þess má geta að Samfylkingin fékk aðeins einn mann kjörinn í suðvesturkjördæmi í síðustu kosningum og því ekki á vísan að róa að Guðmundur komist inn.

Sjá einnig: Guðmundur Andri víkur sáttur

Bubbi er mikill stuðningsmaður Guðmundar Andra og hann lýsir skoðun sinni umbúðalaust á Facebook. „Að færa Guðmund Andra Thorsson niður um sæti er vægast sagt misráðið og ef að verður mun ég, Logi Einarsson, færa mitt sæti niður og ekki kjósa Samfó. Þannig líður mér með þetta.“

Guðmundur Andri svarar að bragði og segir: „Ef ætlunin er að refsa fyrir það að ég sé ekki í fyrsta sæti SF í Kraganum finnst mér það nú ekki rétta refsingin að kjósa mig ekki.“

Bubbi segir að fáir þingmenn búi yfir þeim kostum sem Guðmundur býr yfir.

„Ég er gjörsamlega bit. Þú hefur staðið þig, ég kaus þig vegna þess að þú hafðir trúverðugleika og getu til þess að laga ekki bara ásýnd Alþingis heldur voru kannski ekki margir Alþingismenn og konur sem höfðu þá kosti sem þú hefur. Nú er ákveðið að verðlauna þig með þessum hætti og okkur sem kusum þig í einhverjum leik sem er ekki sanngjarn.“