Tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens er smitaður af Covid-19 og bíður hann nú eftir að geta endurheimt frelsið. Hann segir í færslu á Instagram að yngsta dóttir hans hafi byrjað á að smitast og fengið hita í tvo daga.
Bubbi segir svo að hann og eiginkona hans, Hrafnhildur Hafsteinsdóttir, hafi farið í sóttkví og síðan greinst smituð.
Hann segir að Hrafnhildur hafi verið einkennalaus en hann hafi fengið höfuðverk.
„Nú bíð ég eftir að endurheimta frelsið þó svo það sé í helsi,“ segir hann.