Mikið hefur verið rætt á samfélagsmiðlum síðustu daga um ábyrgð sem fíklar bera á hegðun sinni þegar þeir voru í neyslu og hvort þeir noti neysluna sem afsökun þegar þeir eru orðnir edrú.
Tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens, hefur lagt orð í belg í þessa umræðu. Sjálfur hefur hann verið mjög opinskár um baráttu sína:
„Að vera fíkill er djöfullegt. Engin orð geta líst því. Sumir berjast alla ævi, sumir deyja og sumir ná bata,“ segir hann.
„Sumt sem fylgir okkur inni í edrú heiminn er miður fallegt. Við berum alltaf ábyrgð. Við reynum hefja nýtt líf, mikil vinna liggur að baki batans. Við erum fá sem náum í mark, það eru fleiri sem deyja.“
Útvarpsmaðurinn Þossi tekur undir með honum og segir: „Það er gaman að fylgjast með sjálfum sér þroskast og verða betri með aldrinum, þrátt fyrir gamlar syndir. Að mýkjast upp og verða betri í dag en í gær, er frábært.“