Bubbi Morthens hvetur stuðningsmenn Guðna Th. Jóhannessonar, forseta Íslands, til dáða. Guðni er í framboði til áframhaldandi setu á Bessastöðum og mun hann kljást við Guðmund Franklín Jónsson um embættið. Þeir tveir verða í framboði þegar gengið verður til kosninga þann 27. júní næstkomandi.
Bubbi skrifaði færslu í Facebook-hóp fyrir stuðningsfólk Guðna í gærkvöldi, en um 15 þúsund meðlimir eru í hópnum. Í færslunni sagði hann:
„Það þarf að halda vöku, hlutir gerast ekki sjálfkrafa. Trump varð forseti vegna þess að menn sáu ekki fjöldann sem var þarna úti. Útvarp saga nær til margra,“ sagði Bubbi. Þegar þetta er skrifað hafa um 1200 manns sett „læk“ við færslu Bubba.
Dómsmálaráðuneytið staðfesti í gær með auglýsingu í Lögbirtingablaðinu að forsetakosningar munu fara fram laugardaginn 27. júní næstkomandi. Verður kosið á milli Guðna og Guðmundar.
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla er þegar hafin hjá sýslumönnum um land allt og hjá sendiráðum, sendiskrifstofum og kjörræðismönnum erlendis.
Á höfuðborgarsvæðinu verður fram til 14. júní, að hvítasunnudegi og öðrum í hvítasunnu undanskildum, hægt að greiða atkvæði á fyrstu hæð í Smáralind. Frá og með 15. júní bætast við kjörstaðir á annarri hæð Smáralindar og undir stúkunni á Laugardalsvelli. Kosningarnar verða níundu almennu forsetakosningarnar en Sveinn Björnsson, fyrsti forseti lýðveldisins, var kjörinn af Alþingi þann 17. júní 1944.