Bubbi Morthens gefur lítið fyrir fréttir af meintum vændiskaupum Tomma á Hamborgarabúllunni. Bubbi tjáir sig á Twitter en fær bágt fyrir af hálfu Sóleyjar Tómasdóttur.
„Hverjum er ekki sama þó fólk útí bæ stundi kynlíf,“ spyr Bubbi á samfélagsmiðlinum. Eins og fram hefur komið virðist Tómas sjálfur staðfesta að hann hafi keypt vændi með birtingu skjáskots af SMS samskiptum sem virðast vera á milli hans og ónefnds aðila.
Sjá einnig: „Byrjaði á nuddkonunni fyrr í dag“
Sóley svarar Bubba. „Mér er alveg sama um kynlíf fólks úti í bæ. En það er ekki í lagi að hvítur gamall forréttindakarl nýti valdastöðu sína gagnvart ungum tælenskum konum. Þú átt að vita betur Bubbi.“
Sóley heldur svo áfram og beinir spjótum sínum að virkum í athugasemdum. „Halló virk í athugasemdum. Og
@BubbiMorthens. Íslenskur þingmaður sem misnotar vald sitt og aðstöðu gagnvart ungum konum í Tælandi er ekki einhver að stunda kynlíf úti í bæ. Hann er valdakarl að beita ofbeldi.“
Bubbi svarar að nýju: „Hann var ekki þingmaður þá og mér kemur þetta ekki við ég hinsvegar tel vændi ömurð.“
Sóley gefur lítið fyrir þau svör. „Jú, þetta kemur þér við. Hann er hvítur valdakarl frá vesturlöndum að misnota stöðu sína. Við eigum öll að láta okkur slíkt varða.“