Tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens er enginn aðdáandi Brynjars Níelssonar og Sigríðar Andersen, þingmanna Sjálfstæðisflokksins.
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík fór fram um helgina og þar endaði Brynjar í 5. sæti en Sigríður náði ekki einu sinni einu af átta efstu sætunum. Brynjar stefndi á 2. sætið en varð ekki að ósk sinni og sagðist hann í kjölfarið ætla að kveðja stjórnmálin. Sigríður sóttist einnig eftir 2. sætinu og ætlar að halda áfram að leggja sjálfstæðisstefnunni lið.
Bubbi Morthens var ánægður með niðurstöðuna um helgina, ef marka má athugasemd hans við færslu Björns Inga Hrafnssonar á Facebook í gær. Þar skrifaði Björn Ingi um niðurstöður prófkjörsins og velti fyrir sér næstu skrefum þessara fráfarandi þingmanna. Í athugasemd sinni sagði Bubbi einfaldlega:
„Þetta eru frábærar fréttir að Brynjar og Sigga fái ekki brautargengi með sinn málflutning.“