Bubbi fór í bíó og sá mynd Ingvars og Bjarkar: „Þetta er versta víkingamynd ever“

Tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens virðist ekki vera yfir sig hrifinn af nýjustu mynd leikstjórans Robert Eggers.

Eggers og Sigurjón Birgir Sigurðsson, betur þekktur sem Sjón, eru handritshöfundar myndarinnar og skartar hún í helstu hlutverkum stórleikurum á borð við Alexander Skarsgård, Nicole Kidman, Ethan Hawke, Anyu Taylor-Joy, Willem Dafoe, Ingvari E. Sigurðssyni og tónlistarkonunni Björk Guðmundsdóttur.

Bubbi blandaði sér í umræður á Twitter þar sem einn notandi varpaði fram þeirri spurningu hvers vegna allir Íslendingar væru ekki að missa vitið yfir The Northman.

„Ísland, Björk, Ingvar E, Sjón, sagna arfurinn, genuinely geggjuð kvikmynd, ég raunverulega skil ekki hvernig þetta er ekki stærsta mynd ársins á Íslandi,“ sagði viðkomandi.

Bubbi virðist hafa skellt sér á myndina og hann var ekkert sérstaklega hrifinn ef marka má athugasemd hans.

Þetta er versta víkingamynd ever. Allar þessar stjörnur í frjálsu falli með versta handrit seinni tíma og fulla vasa fjár. Svo vond mynd að sumar senur eru eins og stolnir draumar úr 3 ríkinu um Valhöll. Útlitið er smart en ekkert innihald. Mín skoðun.“

Myndin gerist við upphaf tíundu aldar á Íslandi og fjallar hún um víkingaprins og hversu langt hann er tilbúinn að ganga til að ná hefndum fyrir föður sinn sem var myrtur. Það skal tekið fram að myndin hefur fengið mjög fína dóma hjá gagnrýnendum og er hún með einkunnina 7,9 á kvikmyndavefnum IMDB.com. Þá fékk hún fullt hús stiga hjá gagnrýnendum The Guardian og The Independent.