Bubbi fallinn fyrir lús­mýi: „Al­gjört kikk“

Svo virðist vera sem söngvarinn Bubbi Morthens hafi fallið fyrir lús­mýinu sem fyrst kom fram í Kjósinni fyrir ör­fáum árum síðan.

Þetta má sjá á Twitter þar sem Bubbi svarar tísti Twitter höfðingjans Hrafns Jóns­sonar um lús­mýið. Hrafn segir Ís­lendinga svo vana því að búa á full­kom­lega líf­lausu landi að þeir kunni ekkert að díal við líf­ríkið.

Bubbi er hins­vegar hvergi banginn og virðist ef eitt­hvað gleðjast vegna litlu flugnanna. „Ég bjó í kjós þar sem lús­mýið kom fyrst fram stundum fékk ég bara nokkrar stungur ég elskaði að klóra þær al­gjört kikk.“