Bubbi fagnar nýjum Abba lögum: „Minnist þess tíma þegar ég taldi þau vera börn satans“

Einn ást­sælasti laga­höfundur og tón­listar­maður landsins Bubbi Morthens, fagnar tveimur nýjum lögum með sænsku hljóm­sveitinni ABBA líkt og aðrir lands­menn. Bubbi segist þó ekki hafa haft miklar mætur af hljóm­sveitinni á árum áður þegar hún var upp á sitt besta.

„Abba er líkt og kær­komin hvíld og ég legst niður á hljóma beðinn þeirra og minnist þess tíma þegar ég taldi þau vera börn satans og ég brosi inní mér 2 ný lög,“ skrifar Bubbi á Face­book.

Nú í morgun birti hann síðan mynd af sér í bol með sýningunni 9 líf sem fjallar um líf hans og skrifaði „9 líf Abba“