Leikkonan Jóhanna Vigdís Arnardóttir birti færslu á Facebook-síðu sinni í gær þess efnis að hana hafi eitt sinn langað í Teslu.
„Einu sinni langaði mig í Teslu-ekki lengur!,“ sagði Jóhanna.
Ætla má að ástæðan sé óvægin orð sem Elon Musk, stofnandi bílaframleiðandans, eigandi Twitter og einn ríkasti maður heims, viðhafði um Harald Þorleifsson, mann ársins 2022 hér á landi og fyrrverandi starfsmann Twitter.
Eins og alþjóð veit áttu Musk og Haraldur í hörðum orðaskiptum á Twitter í tengslum við starfslok Haraldar hjá fyrirtækinu. Þau enduðu svo með því að Musk hringdi í Harald og bað hann afsökunar á orðum sínum.
Fjölmargir lögðu orð í belg við færslu Jóhönnu og tóku margir undir með Jóhönnu um að eignast ekki Teslu-bíl eftir fréttir gærdagsins.
„Mig hefur aldrei langað í hana og hefur ekki snúist hugur.,“ sagði ein á meðan annar bætti við: „Mig hefur aldrei langað í Teslu.“
Tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens lét ekki sitt eftir liggja og kvaðst hjartanlega sammála Jóhönnu. „Enda ekki góðir bílar, því miður.“
Óvíst er hvað Bubbi hefur fyrir sér varðandi það að bílar Teslu séu ekki góðir. Teslu-eigendur eru að minnsta kosti ánægðir með bílana sína ef marka má skýrslu Consumer Reports frá árinu 2021. Samkvæmt henni voru eigendur Teslu 3 ánægðustu ökutækjaeigendurnir.