Bubbi ekki sáttur: „Bara kjaft­æði“

„Ég byrjaði að reykja sex ára gamall og ég mökkreykti 1980. Það væri mjög an­kanna­legt að ætla að fara að rit­skoða það með ein­hverjum hætti. Það er bara kjaft­æði,“ segir tón­listar­maðurinn Bubbi Morthens í sam­tali við Morgun­blaðið í dag.

Blaðið greinir frá því að sígaretta í munn­viki Bubba á þekktri mynd hafi verið fjar­lægð af nánast öllu markaðs­efni söng­leiksins Níu lífa. Söng­leikurinn fjallar ein­mitt um ævi Bubba sem er í hópi vin­sælustu tón­listar­manna Ís­lands­sögunnar.

Pétur Rúnar Heimis­son, markaðs­stjóri Borgar­leik­hússins, stað­festir að leik­húsinu hafi borist kvartanir vegna myndarinnar og herma heimildir Morgun­blaðsins að kæra hafi meira að segja borist. Pétur segir að raddir hafi komið fram um að sígarettan stuðlaði að reykingum og Borgar­leik­húsið hafi ekki viljað fara gegn for­varnar­starfi gegn reykingum. Þess vegna var myndinni breytt.

Bubbi er ekki beint sáttur við þetta og veltir fyrir sér hvers konar þjóð­fé­lagi við búum í.

„Við erum komin í þjóð­fé­lag þar sem stóri bróðir er kominn yfir og allt um kring, hvort sem okkur líkar betur eða verr,“ segir Bubbi sem hætti að reykja árið 2005.