Bubbi Morthens, líkt og meirihluti þjóðarinnar, horfði á íslenska landsliðið í handbolta tapa fyrir Ungverjum á laugardaginn en hann lítur þó björtum augum á framhaldið.
„Það er fegurð í Íþróttum einhver sannleikur, í hnefaleik getur þú unnið 11 lotur og í 12 lotunni eru 9 sekúndur eftir og þú tapar á rothöggi líkt og þegar Julio César Chávez rotaði Meldrick Taylor um árið. Íslenska landsliðið átti stórkostlegan leik í gær en tapaði samt það er partur af leiknum auðvitað varð ég svektur og væntingar mínar fuku útí veður og vind en það er bara mitt sófa EGO sem á í hlut,“ skrifar Bubbi.
„Gummi var með flott plan sem virkaði en svo kemur það sem gerir Íþróttir svo æðislegar hið mannlega og í gær var það hið mannlega sem gerði það að verkum að við töpuðum því landsliðið okkar er ekki vél heldur hópur af strákum sem eru mannlegir og það í báðum liðum. Þar liggur fegurðinn á endanum erum við öll mannlega ég hef fulla trú á Landsliðinu megi það aldrei verða vél án hins mannlega leikurinn í gær var geggjuð skemmtun rússíbana reið hjá mér í sófanum þar sem ég gladdist öskraði blövaði og sökk undir púðana en ég hef fulla trú á hið mannlega lið okkar komist langt í þessa kepni Áfram Ísland,“ skrifar Bubbi að lokum.