Tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens birti kraftmikla færslu á Facebook-síðu sinni í vikunni þar sem hann sendi býsna sterk skilaboð til fylgjenda sinna.
Bubbi hefur gengið í gegnum ýmislegt á sinni ævi og oft opnað sig um neysluna. Hann lifir heilbrigðum lífsstíl í dag og kemur hann inn á mikilvægi þess í færslunni.
„Ég fer í líkamsrækt 5-6 sinnum í viku, ég borða oftast mjög hollt, fasta frá 18-6, reyni að sofna snemma og vakna snemma. Ég er hreinn, reyki ekki, dópa ekki og drekk ekki áfengi,“ sagði Bubbi og bætti við að hann saknaði einskis af þessum vímugjöfum.
Bubbi viðraði svo áhyggjur sínar af aukinni áfengisdrykkju meðal þjóðarinnar.
„Þjóðin er að auka drykkju sína á áfengum drykkjum. Við skulum muna að drykkja gerir öngum gott, það er einfaldlega óholt. Alkóhól er baneitrað í stórum skömmtum og er merkt sem slíkt en langvarandi neysla 1-2 í viku étur þig upp að innan sem utan,“ sagði Bubbi sem endaði færsluna af auðmýkt.
„Að því sögðu þá er ég á fyrsta farrými lífsins og hver vill ekki vera á fyrsta farrými? Ég skrifa þetta af þakklæti og auðmýkt yfir því að skynjun mín hvern dag er ómenguð.“