„Að fara í gegnum lífið 25 ár án þess að setja línu á spegil, reykja jónu eða hass í pípu eða drekk vín er svo magnað. 11 september er edrúdagur minn. Ég hef aldrei litið um öxl, aldrei fengið löngun og þarf ekkert af þessum efnum. Allar upplifanir eru hreinar og tærar og djúpar og sannar.“
Þetta segir tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens á Twitter-síðu sinni. Bubbi er mikill talsmaður þess að lifa hreinu og góðu lífi en hann sagði í Fréttablaðinu árið 2013 að sú ákvörðun að verða edrú hafi bjargað lífi hans.
„Ég hélt um tíma lista yfir þá vini og kunningja sem höfðu verið mér samferða í neyslunni. Svo hætti ég því. Nöfnunum á listanum tók að fækka ansi hratt. Þegar menn deyja úr neyslu heitir það ýmsum nöfnum – stundum sjálfsvíg, stundum hjartaáfall. Ég er löngu búinn að missa töluna á þeim sem ég hef horft eftir yfir móðuna miklu vegna drykkju,“ sagði hann í viðtalinu.
Bubbi bætti um betur á Twitter um helgina og sagði: „Áfengi er ömurlegasti vímugjafi sem til er. Móðgun fyrir heilann og taugakerfið eins og Pepsí Max á gosmarkaðinum.“
Sitt sýnist hverjum um þessi ummæli Bubba um Pepsi Max. Rithöfundurinn Eiríkur Örn Norðdahl tekur heilshugar undir. „Ég hef enn ekki hitt vímugjafa sem er jafn andlaus og Pepsi Max, með fullri virðingu fyrir þeim annars ágæta gosdrykk. Það er ekki einu sinni sykur í þessu.“
Útvarpsmanninum Þorsteini Hreggviðssyni, oftast kallaður Þossi, þykir full hart vegið að Pepsi Max. „Diet Coke er samt miklu verra en Pepsi Max, eins og Coke er mun verra en Pepsi, eins og allir vita.“
Að fara í gegnum lífið 25 ár án þess að setja línu á spegil reykja jónu eða hass í pípu eða dreka vín er svo magnað 11 sep er edrú dagur minn ég hef aldrei litið um öxl aldrei fengið löngun þarf ekkert af þessum efnum allar upplifanir eru hreinar og tærar og djúpar og sannar
— Bubbi Morthens (@BubbiMorthens) February 27, 2021