Tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens hefur verið áberandi undanfarna daga eftir að hann gagnrýndi þingmenn fyrir þögn þeirra í Samherjamálinu.
Nú greinir Bubbi frá því á Twitter-síðu sinni að hann hafi fengið boð í bólusetningu á morgun. Hann bendir á að margir hafi heyrt um bóluefni Astra Zeneca gegn COVID-19. Sumir hræðist bóluefnið og kveðst hann sjálfur vera í þeim hópi.
„Nú ætla ég að stíga inn í óttann og láta sprauta mig í fyrramálið með opinn faðminn,“ segir Bubbi og birtir mynd af sér þar sem hann situr reffilegur úti í sólinni.
Notkun bóluefnisins var stöðvuð tímabundið, meðal annars hér á landi, vegna hættu á blóðtappa. Síðan þá hefur notkun þess verið leyfð aftur, meðal annars í ljósi þess að ekki hefur borið á þessum alvarlegu aukaverkunum hjá einstaklingum sem komnir eru yfir sextugt. Bubbi verður 65 ára í sumar og er í fantaformi eins og hans er von og vísa.
Astra zeneca er bóluefni sem margir hafa heyrt um og sumir hálf hræðast þar á meðal ég,nú ætla ég að stíga inní óttann og láta sprauta mig í fyrramáli með opin faðminn 🙏💪🍀🍀 pic.twitter.com/nO4PaNtsL9
— Bubbi Morthens (@BubbiMorthens) April 27, 2021