Brynleifur fengið nóg: „Er ekki kominn tími til að lifa eðlilegu lífi með þessari flensu?“

„Er ekki kominn tími til að lifa eðlilegu lífi með þessari flensu, óttalaus með fólkinu okkar, ekki sundruð, heilaþvegin af hagsmunaaðilum, hrædd og hlýðin?“

Þessum spurningum varpar Brynleifur Siglaugsson, húsasmíðameistari og áhugamaður um frelsi, fram í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag. Þar skrifar Brynleifur um COVID-19 og sóttvarnaaðgerðir hér á landi og fer yfir faraldurinn sem hefur látið til sín taka hér á landi síðasta eina og hálfa árið.

„Í byrjun var okkur sagt að þetta væri drepsótt mikil sem myndi taka fjöldann allan af lífum. Á tímabili var heitasta umræðan um skort innanlands á líkpokum. Búið var til þríeyki sem átti að leiða þjóðina í gegnum þennan skelfilega tíma, allt átti að vera uppi á borðinu og allir áttu að hlýða Víði og syngja með Þórólfi og Ölmu … klappa fyrir heilbrigðisstarfsfólki sem allt í einu var svo gríðarlega mikilvægt,“ segir hann meðal annars.

Brynleifur virðist ekki hafa mikla trú á bóluefnaframleiðendum eða þeim bóluefnum sem standa heimsbyggðinni til boða.

„Þórólfur lofaði þjóðinni hjarðónæmi eftir að 60-70% hennar yrðu bólusett með sulli sem hrært var saman á innan við ári af lyfjarisum sem bera svo akkúrat enga ábyrgð á afleiðingum sullsins. Svandís gerði auðvitað samning um kaup á 1,4 milljónum skammta af þeim, leynilegan, en samt átti allt að vera uppi á borðinu! Eftir að stór hluti þjóðarinnar sást á hlaupum í Sprautuhöllina til að fá töframeðali dælt í sig, við undirleik annaðhvort sinfó eða rapp-dj í beinni útsendingu hjá hinum ótrúlega vel vakandi fjölmiðlum, þá átti allt að breytast, allt átti að opnast, lífið átti að verða eins og það var eða betra,“ segir Brynleifur og bætir við að annað hafi komið á daginn.

„Skyndilega er Landspítalinn kominn á hættustig – stundum vegna Covid og stundum vegna uppsafnaðs vanda! Ef örfáir sjúklingar valda því að Landspítalinn fer á hættustig, hvað gerist þá ef stórslys verður? Loka þeir þá bara? Og hvað um öll dauðsföllin sem orðið hafa eftir frestun mikilvægra aðgerða meðan á hættustiginu stendur? Hvað eru þau mörg? Þegar þetta er skrifað er hærra hlutfall af bólusettum en óbólusettum inniliggjandi, tilkynntar aukaverkanir efnanna vel á þriðja þúsund, margar alvarlegar og 27 dauðsföll. Hvað gerir þetta svokallaða bóluefni fyrir okkur og af hverju í ósköpunum á að fara að dæla því í saklaus börn? Er ekki kominn tími á að hinir leynilegu samningar við lyfjarisana verði gerðir opinberir? Er ekki kominn tími til að lifa eðlilegu lífi með þessari flensu, óttalaus með fólkinu okkar, ekki sundruð, heilaþvegin af hagsmunaaðilum, hrædd og hlýðin?“