„Nú hef ég verið settur í tímabundið tjáningarbann, sem tekur gildi á miðnætti, og er bannið sett á grundvelli þeirrar reglu að hafir þú ekkert fallegt og gott að segja, skaltu þegja.“
Þetta segir Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í færslu á Facebook-síðu sinni.
Brynjar hefur staðið í ströngu að undanförnu og skipst á nokkrum vel völdum orðum við þingmenn stjórnarandstöðunnar, þá einna helst þingmenn Pírata. Hefur sumum þótt Brynjar vera full neikvæður. Í færslu í fyrradag skaut hann til dæmis fast á stjórnarandstöðuna vegna upphlaupsins sem varð þegar Steingrímur J. Sigfússon sleit þingfundi í vikunni.
„Og að þessar frekjudósir skuli halda, að ummæli og dylgjur af þessu tagi um forseta og andstæðinga, ganga um þingsalinn skólaus í lörfum og tala niður land og þjóð við hvert tækifæri, sé til þess fallið að auka virðingu þingsins,“ sagði Brynjar meðal annars.
Brynjar segir að tjáningarbannið, sem sett er af „sóttvarnalækni heimilisins“ taki gildi á miðnætti. Það hafi einnig haft áhrif á skipunina að núna væri ekki rétti tíminn til að vera með leiðindi og skapa úlfúð enda þjóðin í miðjum faraldri Covid-19.
Þessi ákvörðun Brynjars hefur vakið misjöfn viðbrögð en forvitnilegt verður að sjá hversu lengi hann getur haldið sig frá Facebook.
Þessir göngutúrar mínir eru að verða að fíkn. Gekk allt Grímsnesið um helgina í roki og rigningu. Menn eru farnir að...
Posted by Brynjar Níelsson on Sunnudagur, 19. apríl 2020