Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur lagt inn fyrirspurnir til skriflegs svars til allra ráðuneyta. Það sem Brynjar vill vita er kostnaður ráðuneytanna við að svara skriflegum fyrirspurnum.
Þó Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata, sé ekki nefndur á nafn í fyrirspurnunum er augljóst að þessum tilteknu fyrirspurnum er ætlað að varpa frekara ljósi á fjölda fyrirspurna Björns Leví. Björn hefur verið duglegur að leggja inn beiðnir um skrifleg svör við hinu og þessu eins og fjallað hefur verið um.
Fyrirspurn Brynjars til hvers ráðuneytis er í þremur liðum:
- Hversu margir starfsmenn ráðuneytisins koma að því að undirbúa skrifleg svör við fyrirspurnum þingmanna og hver er áætlaður heildarfjöldi vinnustunda sem í það hefur farið árlega síðastliðin fimm ár?
- Hver er heildarkostnaður ráðuneytisins við skrifleg svör við fyrirspurnum frá þingflokki Pírata á yfirstandandi löggjafarþingi og hversu margar vinnustundir starfsmanna hafa farið í að svara þeim?
- Hvað eru fyrirspurnir til skriflegs svars frá hverjum þingmanni í þingflokki Pírata hátt hlutfall slíkra fyrirspurna til ráðherra?
Fréttablaðið greindi frá því í júní í fyrra, þegar þingið var á lokametrunum fyrir sumarfrí, að 28 fyrirspurnum frá Birni væri ósvarað. Þess má geta að fyrirspurnum sem ekki er svarað falla niður við þinglok og þurfa þingmenn því að leggja þær aftur fram í upphafi nýs þings.
Þegar nafni Björns Leví er flett upp á fyrirspurnarsíðu á vef Alþingis kemur það fyrir alls 74 sinnum frá því í fyrrahaust. Nokkrar þeirra eru þó til fleiri en eins ráðherra eða ráðuneytis sem hefur áhrif á fjöldann.
Í viðtali við RÚV í september í fyrra viðurkenndi Björn Leví að ráðherrar væru stundum pirraðir á fyrirspurnargleði hans. „Jú, pínulítið. Nú er held ég í utanríkisráðuneytinu, og kannski einhverjum fleirum, farið að taka fram í lok fyrirspurnar hversu langan tíma tók að svara fyrirspurn, sem mér finnst bara mjög sniðugt,“ sagði Björn Leví.