Brynjar vill taka við af Rakel sem fréttastjóri RÚV: „Þeir auglýsa ekkert“

Brynjar Níelsson, fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hyggst sækja um stöðu fréttastjóra Ríkisútvarpsins og taka þannig við af Rakel Þorbergsdóttur sem hættir um áramótin.

Óvíst er hvort honum sé fullkomin alvara en hann virtist tala af einlægni þegar hann var spurður í þættinum Bítið á Bylgjunni í morgun. „Ég myndi gjarnan vilja það,“ sagði Brynjar.

Hann segist ekki vera búinn að sækja um formlega: „Þeir auglýsa ekkert.“ Það væri þó ekki fyrr en eftir áramót. „Ég hugsa að ég sæki um þá.“

Brynjar, sem er lögfræðingur að mennt, þyrfti að fara í fréttamannapróf, hann hefur ekki áhyggjur af því. „Ég er búinn að vera svo mikið í fjölmiðlum, ég hlýt að geta það.“