Brynjar ver til­lögu Andrésar: „Skein í gegn and­úðin á vinnu og vinnu­markaði“

Brynjar Níels­son, að­stoðar­maður dóms­mála­ráð­herra, segir að það hafi ekki komi sér á ó­vart að Twitter færi á hliðina yfir eðli­legum vanga­veltum Andrésar Jóns­sonar um að rýmka heimildir ung­menna á vinnu­markaði.

„Til­­laga: Rýmkum heimildir krakka á aldrinum 12-18 ára til að vinna.

- Það vantar fólk í verslun, veitingar og þjónustu.

- Þau og for­eldrar þeirra myndu gjarnan vilja fá létta sumar­vinnu fyrir þau.

- Verndun táninga frá því að þurfa/mega vinna hefur gengið að­eins of langt,“ skrifaði Andrés á Twitter.

Til­lagna mætti miklu mót­læti á Twitter og var Andrésmeðal annars sakaður um að styðja barna­þrælkun.

„Þar mátti sjá menn frussa út úr sér í full­komnu ó­jafn­vægi að börn ættu að vera frjáls frá vinnu­markaði eins og það væri göfug gildi og mann­gæska. Skein í gegn and­úðin á vinnu og vinnu­markaði, sem litið er á sem þrælkun eða eitt­hvað sem til­heyrir for­tíðinni,“ skrifar Brynjar.

„Það er hluti af lær­dóms- og þroska­ferli hvers og eins ung­mennis að vera í vinnu­réttar­sam­bandi. Skynja að réttindum fylgir skylda og það er ekki alltaf hægt að fá allt fyrir ekki neitt. Það er ekki gamal­dags hugsun þótt Tvitter fólkið segi það, heldur klassískur sann­leikur. Ef ung­menni geta verið 7 tíma á dag í skóla­stofunni, jafn­vel leið og kvíðin, geta þau verið hluta úr degi á vinnu­markaði í sumar-jóla og páska­fríum. Auð­vitað þarf að hafa mörk í þessu eins og öðru og á­stæðu­laust er að gera lítið úr mikil­vægi tóm­stunda og hvíldar,“ bætir hann við.