Brynjar veður í Benedikt: „Ein­hver gæti haldið því fram að þetta væri spark í punginn á femín­istum“

Brynjar Níels­son, að­stoðar­maður dóms­mála­ráð­herra, lét Bene­dikt Jóhannes­son, stofnanda Við­reisnar, heyra það á face­book í gær er hann óð í ára­mótapistill Bensa á Kjarnanum.

„Stofnandi Við­reisnar, Bene­dikt Jóhannes­son, gerir upp árið í stjórn­málum í löngum pistli á Kjarnanum. Hann byrjar pistilinn á því að segja að stjórn­mála­menn í dag líti betur út í fjarska en í nánd. Hélt ég þá að pistillinn væri helgaður mér. Svo gott var það nú ekki heldur var hann að segja að stjórn­málunum hafi heldur hrakað og stjórn­mála­menn nú til dags hefðu ekki sömu gáfur og elegans og áður. Ein­hver gæti haldið því fram að þetta væri spark í punginn á femín­istum,“ skrifar Brynjar

„Það situr enn í Bensa að "frjáls­lynda miðjan", sem hann og Kjarninn segja vera Við­reisn, Sam­fylkingu og Pírata, hafi verið hafnað í kosningunum. Honum finnst greini­lega kjós­endur í dag ekki vera síður heimskir en stjórn­mála­mennirnir. Það er nú samt svo, Bensi minn, að uppi­staðan í Sam­fylkingunni og Pírötum eru vinstri rót­tæklingar sem trúa að sósíal­isminn sé leiðin að rétt­látu vel­ferðar­sam­fé­lagi,“ bætir Brynjar.

Hann segir vinstri menn að vísu hættir að tala um að þjóð­nýta at­vinnu­lífið en telja engu að síður að ríkið sé með að meira og minna á herðununum.

„Því allt þar telst nú til dags til mikil­vægra inn­viða. Þess vegna á ríki eða sveitar­fé­lög að eiga öll orku­fyrir­tæki, sam­göngu­fyrir­tæki, flug­velli og flug­stöðvar og helst út­gerðir svo aðrir séu ekki að græða á auð­lindinni okkar. Ég hélt að svona gáfaður maður, og Bensi er, vissi að þessi hug­mynda­fræði er leiðin til glötunar nú sem áður.“

„Það sem Við­reisn á sam­eigin­legt með hinum flokkunum í "frjáls­lyndu miðjunni" er and­úð á allri þjóð­ernis­kennd. Þess vegna hafa þing­menn þessara flokka eytt mestu orkunni á þinginu í að gæta hags­muna annarra en Ís­lendinga. Að vísu eru öfgar í þjóð­hyggju jafn hættu­leg og öfgar í öðru. En hæfi­leg þjóð­ernis­kennd er nauð­syn­leg öllum þjóðum ef árangur á að nást. Þetta vita allir sem hafa ein­hvern tíma verið í liði.“

„Á­stæðan fyrir því að "frjáls­lynda miðjan" tapaði kosningum, kæri Bensi, er sú að mál­flutningur þeirra var popu­lískur. Hægt er að ná árangri með slíkum mál­flutningi en þegar hoppið á vin­sældar­vagnana er of hátt missa menn traust og trú­verðug­leika. Svona er þetta ein­falt.“