Brynjar um Öfga: „Þið eruð að eyði­leggja sam­fé­lagið í mínum huga“

Brynjar Níels­son, lög­maður og fyrr­verandi þing­maður Sjálf­stæðis­flokksins, var í við­tali á Út­varpi Sögu í gær. Fyrr í dag greindi DV frá því að um­ræða þáttarins hafi leitt út í bar­áttu­hópinn Öfga og hafði Brynjar ýmsar skoðanir á þeim.

Hann segir að með til­komu Öfga og sam­bæri­legra bar­áttu­hópa séum við sem þjóð­fé­lag komin á hættu­legan stað. „Þegar ein­hverjir hópar hér eru farnir að taka að sér með skipu­lögðum hætti að of­sækja fólk í raun og veru, of­sækja fyrir­tæki og stofnanir sem hafa slíkt fólk í vinnu og svo fram­vegis, þá erum á mjög hættu­legum stað,“

„Þetta er auð­vitað í mínum huga bara venju­legt of­stæki sem blossar upp og fær með­byr, enginn þorir að and­mæla. Ég er bara með ein­falt sjónar­horn á þetta allt saman: Við erum búin að búa hér til eitt­hvað réttar­ríki þar sem mál fara í á­kveðinn far­veg og eiga að vera þar. Það gilda bara alveg lykil­reglur sem allir eiga að þekkja en ef menn hafa brotið af sér og fá dóm þá sitja þeir uppi með þá á­byrgð,“ segir Brynjar sem kveðst þekkja slík mál og mála­flokka betur en margir sökum starfa sinna.

Hann vill að al­menningur standi saman gegn slíku at­hæfi: „Við eigum bara að taka okkur saman og segja að við ætlum að hafna þessu, við búum í réttar­ríki, þar gilda á­kveðnar leik­reglur og við ætlum að fara eftir því.“

Hann viður­kennir þó að vissu­lega fari sumir yfir mörk og þurfi þar af leiðandi að sæta á­byrgð sinna gjörða. Kerfið eigi hins vegar að sjá um það.

Bar­áttu­hópurinn Öfgar berst fyrir því að þol­endur njóti vafans. Því er Brynjar ekki alls­kostar sam­mála: „Ég hef heyrt í mörgum þáttum: „á ekki þolandinn að njóta vafans?“ Ég segi að í leik­reglunum er það hinn sakaði sem nýtur vafans í öllu þegar við erum að tala um hátt­semi af þessu tagi. Menn eru bara að snúa öllum hlutunum á haus.“

Brynjar segir að erfitt sé að dæma um hvor hafi rétt fyrir sér. Þá snúist þessi mál ekki um hverjum eigi að trúa, þetta sé ein­fald­lega mun flóknara en það.

Hann heldur á­fram og segir að bar­áttu­hópar séu að eyði­leggja sam­fé­lagið: „við ætlum að ýta þessu öllu til hliðar þá erum við komin í sam­fé­lag sem telst ekki siðað sam­fé­lag í mínum huga. Menn eru að fara þessa leið, allt í nafni ein­hvers rétt­lætis, nafni ein­hverra byltinga, nafni ein­hverra réttinda. Þið eruð ekki að því, þið eruð að eyði­leggja sam­fé­lagið í mínum huga.“