Brynjar Níelsson ritar færslu á Facebook síðu sinni í dag þar sem hann spyr á hvaða vegferð Ísland sé í loftslagsmálum. Hann er fullur efasemda um ágæti menntunar í vestrænum ríkjum vegna þeirra aðferða sem notaðar eru í barátunni gegn loftslagsbreytingum.
„Í vestrænum lýðræðisríkjum er menntun betri og meiri en víðast hvar annars staðar. En það virðist ekki hafa áhrif á gáfur og dómgreind okkar til batnaðar nema síður sé. Hér koma nokkur dæmi: Stjórnmálamenn trúa að þeir geti samið um hitastig og veðurfar á jörðinni til framtíðar. Ef svo er vil ég að Íslendingar semji um að veðurfar á Íslandi verði það sama og á landnámsöld þegar landið var skógi vaxið frá fjöru til fjalls og meðalhiti 2 gráðum hærri en í dag,“ segir Brynjar.
Hann heldur áfram: „Ungmenni, sem ekki náði að ljúka grunnskóla vegna loftslagskvíða, er sæmd heiðursdoktorsnafnbót við vestræna háskóla. Sambærilegir elítuhópar veita peningaverðlaun til manns sem ljóstraði upp um mútur en var aðalgerandi í því broti að eigin sögn. Aðrir brotamenn í því máli hafa enn ekki fundist hér á landi,“ segir Brynjar.
Hann er ekki fullvissaður um að framtíðar kynslóðir kunni lausn á vandanum: „Er von að spurt sé á hvaða vegferð við erum. Þá held ég að þessi svokallaða 68 kynslóð hafi verið heldur skárri. Hún var allavega skemmtilegri og vitleysan stóð stutt yfir,“ segir Brynjar.
Helgi Hrafn Gunnarsson fyrrverandi þingmaður Pírata setur inn athugasemd við færslu síns fyrrum kollega: „Við erum vonandi á þeirri vegferð að þingmennirnir sem taki við af okkur tveimur, geti drattast til að kynna sér málin sem þeir móta sér skoðanir á. Að minnsta kosti pínulítið. Meira en ekkert,“ segir Helgi.
Brynjar svarar Helga: „Ég hef mestar áhyggjur af dómgreind og skynsemi þeirra sem taka við af okkur. Vona samt að hún verði betri en okkar.“
Sveinn Andri Sveinsson lögmaður og samfélagsrýnir svarar Brynjari, og það ekki í fyrsta sinn: „Miðað við hversu unga kynslóðin er upplýst í samanburði við þig hefur menntakerfið greinilega tekið stórstígum framförum.“
Þá svarar Einar nokkur Brynjari: „Ertu andsnúinn því að reynt sé að draga úr útblæstri CO2 á heimsvísu (m.a. með alþjóða samningum), Brynjar? Telurðu kannski að aukinn styrkur CO2 í andrúmslofti af mannavöldum hafi engin áhrif á loftslag?“
Brynjar svarar Einari: „Er ekki á móti því að draga úr útblæstri og mikill stuðningsmaður um skipti yfir í hreina orku. Við vitum samt ekkert hvað þetta litla brot af co2 sem við dælum upp hafi mikil ef nokkur áhrif á veðurfar. Og er ekki stuðningsmaður þess að við drögum verulega úr lífskjörum okkar með aðgerðum sem engu skipta,“ segir Brynjar.