Brynjar þurfti að veita áfallahjálp á afmælisdaginn

Brynjar Níelsson, fyrrverandi þingmaður og aðstoðarmaður dómsmálaráðherra, hélt upp á 62 ára afmælisdaginn sinn í gær. Brynjar þakkaði Facebook-vinum sínum fyrir afmæliskveðjurnar í gærkvöldi og sagði frá því að hann væri staddur á Írlandi og hefði lent í ákveðnum ævintýrum þar.

„Takk fyrir allar hlýlegu afmæliskveðjurnar, kæru vinir. Er staddur á Írlandi með Soffíu og gömlum bekkjarsystrum hennar. Mitt hlutverk er að vera bílstjóri, sem er ekki á færi allra þegar ekið er á vinstri vegarhelmingi. Að aka þeim megin er mér augljóslega þungbært,“ segir Brynjar sem kveðst einnig hafa þurft að taka að sér áfallahjálp.

„Þá tók ég að mér áfallahjálp eftir að leðurblaka flaug inn í húsið hjá okkur. Það var erfitt þegar engin lyf voru til staðar til að slá á mesta tryllinginn. Núna er ég í stöðu meðferðarfulltrúa eftir að hafa keypt áfengi í matvöruverslun. Hefði bjargað miklu ef hér væri ÁTVR.“