Brynjar: „Þið heimtuðuð ein­hver nöfn“

Brynjar Níels­son og Jakob Bjarnar Gretars­son tókust á í Bítinu í Bylgjunni í morgun. Frétta­blaðið gerir við­talinu skil í ítar­legri frétt á vef blaðsins.

Brynjar segir fjöl­miðla líkt og Frétta­blaðið, Kjarnann, Stundina og Mann­líf drifna á­fram af pólitískum hags­munum. Þátta­stjórn­endur sneru upp á hendurnar á Brynjari í því skyni að fá hann til að nefna dæmi um fjöl­miðla sem gera slíkt.

Sjá einnig: Jakob ósáttur út í Brynjar: „Ætti að vera fyrir neðan þína virðingu“

„Sumir fjöl­­miðlar eru bara stofnaðir í kringum einn mann, eitt ag­enda eða eitt sjónar­mið,“ svaraði Brynjar og þegar þeir fé­lagar ýttu á hann um svör við því hvaða fjöl­miðil hann ætti við svaraði hann:

„Hver á einn nánast heilt fjöl­­miðla­veldi? Ég veit ekki einu sinni hvað fjöl­­miðla­­fyrir­­­tækið heitir, hvað heitir það, Torg?“ spurði Brynjar og spurði Heimir þá hvort hann ætti við Frétta­blaðið, sem er í eigu Torgs.

„Hann er að tala um Helga Magnús­­son, geri ég ráð fyrir,“ skaut Jakob inn í en Helgi er eig­andi Torgs. „Já auð­vitað er ég að tala um hann,“ svaraði Brynjar þá.

Nefndi Brynjar einnig Þórð Snæ Júlíus­son, rit­stjóra Kjarnans og síðar í við­talinu nefndi hann Stundina og Mann­líf sem dæmi um miðla sem eru reknir í þessu skyni.

„Þannig blasir þetta við mér og örugg­­lega mörgum öðrum. Að þarna eru menn bara í á­­kveðinni pólitík. Þetta snýst um að tala gegn ein­hverju, þetta snýst um að tala gegn fisk­veiði­­kerfinu, þetta snýst um að tala gegn á­­kveðnum stjórn­­mála­­mönnum, þetta er alltaf sama fólkið, alltaf sömu sjónar­miðin. Ég segi: Af hverju stofnið þið ekki bara hags­muna­blað? Af hverju eruð þið að þykjast vera ein­hver al­vöru fjöl­miðill? Þannig blasir þetta við mér, það er bara það sem ég er að segja.“

Brynjar nefndi ekki Moggann sem dæmi um slíkan miðil. „Ég er ekki að tala um Sýn, ég er ekki að tala um Moggann, eða svona al­vöru fjöl­­miðla. Svo er fullt af al­vöru fjöl­­miðla­­mönnum hjá RÚV líka.“

Um­fjöllun Frétta­blaðsins um málið í heild sinni.