„Einhverra hluta vegna erum við afskaplega dugleg að tala allt niður í íslensku samfélagi. Stefnir í að verða þjóðaríþrótt. Þingmenn og stjórnmálamenn eru hinir verstu menn og þingið og stjórnsýslan öll ónýt og spillt,“ segir Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Brynjar skrifaði pistil um það niðurrifstal sem honum finnst stundum einkenna umræðuna hér á landi. Hann segir að stjórnmálamenn sjálfir séu oft duglegastir við þetta. Þeir telji það sjálfsagt gagnast sér pólitískt.
„Stjórnmálin og stjórnmálamenn eru nú ekki verri en svo að okkur hefur tekist á einni mannsævi að færa þetta samfélag úr örbirgð í eitt mesta velferðarsamfélag nútímans auk þess að takast bærilega að glíma við utanaðkomandi djúpar kreppur. Ætla að láta það liggja á milli hluta í bili hvaða stjórnmálastefna og stjórnmálaflokkur hafi þar lagt mest til svo ég ruggi ekki bátnum.“
Brynjar segir að það sama sé uppi á teningnum þegar kemur að heilbrigðis- og félagskerfinu.
„Því er stöðugt haldið fram að þessi kerfi okkar séu meira og minna ónýt eða að minnsta kosti að við séum miklir eftirbátar annarra. Það stenst enga skoðun og í öllum samanburðar mælingum erum við iðulega við toppinn. Heilbrigðis- og félagskerfi okkar er ekki fullkomið frekar en önnur mannanna verk og mun aldrei leysa hvers manns vanda. Málefnaleg gagnrýni og ábendingar um hvað má betur gera, ekki síst um nýtingu sameiginlegra fjármuna, er mikilvæg því alltaf er hægt að gera betur. Upphlaup og niðurrif gerir ekkert gagn.“
Brynjar segir svo að lokum að nauðsynlegt sé að rifja upp að fé verður ekki aukið til þessara mikilvægu málaflokka nema með aukinni verðmætasköpun atvinnulífsins. Velferð sé ekki pólitísk ákvörðun sem tekin er á þinginu eða í stjórnarráðinu.
„En það er pólitík hvernig umgjörð atvinnulífið býr við til að vera samkeppnishæft og skapað verðmæti. Hljómar öfugsnúið að ég af öllum mönnum tali fyrir jákvæðni og bjartsýni. En það getur gerst þegar menn eru alveg lyfjalausir.“