Brynjar Níelsson segir að það hafi verið fróðleg og upplýsandi umræða um ákvörðun samfélgsmiðilsins Twitter um að loka á aðgang Donald Trump, forseta Bandaríkjanna.
„Umræðan hefur náð að draga skýrt fram tvískinnung og hræsni vinstri manna, og reyndar fleiri, þegar kemur að tjáningarfrelsi og eignarréttinum, sem eru hvorttveggja eru sennilega mikilvægustu mannréttindin í lýðræðissamfélagi,“ skrifar Brynjar.
„Þegar takmarka á tjáningarfrelsi hjá miðlum sem opnir eru fyrir alla þarf það að vera á almennum og hlutlægum forsendum, svo sem eins og hvatning til ofbeldis eða brota á lögum. Þau geta ekki frekar en önnur fyrirtæki ákveðið að hafa bara viðskipti við þá sem þeim eru þóknanlegir og vísað til eignarréttarins,“ segir hann og heldur áfram:
„Nú ber svo við að sósíalistar eru farnir að verja eignarrétt auðvaldsins sem ráði því hverjir geta talað um allan heim. Það hefði heyrst hljóð úr horni ef lokað hefði verið á tjáningarfrelsi þeirra sjálfra.“
Hann segir sjónarmiðin miklu hættulegri lýðræðinu ein eitthvert flón sem situr í æðsta embætti tímabundið.
„Forsenda lýðræðis er tjáningarfrelsi fyrir alla. Þetta óþol fyrir skoðunum annarra er ríkt í mörgum, einkum þeim sem hæst tala nú um stundir um lýðræði og mannréttindi. Þetta er örugglega heimsmet í tvískinnungi og hræsni.“
Fróðleg og upplýsandi umræða hefur orðið eftir að samfélagsmiðilinn Tvitter ákvað að loka fyrir aðgang forseta...
Posted by Brynjar Níelsson on Sunday, 10 January 2021