Brynjar svarar þrumuræðu Kristins: „Hann er örugglega bráðfyndinn“

Kristinn Hrafnsson, ritstjóri Wikileaks, tók þátt í mótmælum vegna yfirheyrslna á blaðamönnum á Austurvelli um helgina þar sem hann gerði grín að Brynjari Níelssyni, aðstoðarmanni innanríkisráðherra.

Brynjar hefur horft á ræðu Kristins og segir hann hafa yfirbragð manns sem hafi aldrei litið glaðan dag.

„Hann er örugglega bráðfyndinn og skemmtilegur maður. Það er nú samt svo að grín, sérstaklega stólpagrín, fer fyrir ofan garð og neðan þegar menn eru að grínast titrandi af reiði. Þessi vinsamlega ábending mín til grínara landsins er ókeypis,“ segir Brynjar í færslu á Facebook.

Brynjar hefur verið duglegur að tjá skoðanir sínar á þessu máli og hann segir að ofsafengin viðbrögð við væntanlegum yfirheyrslum hafi verið frumhlaup, nú þegar menn hafi áttað sig á því þá sé búið að snúa umræðunni út í að það sé óeðlilegt að aðstoðarmaður dómsmálaráðherra taki þátt í umræðunni á opinberum vettvangi.

„Eins og með allt annað þá er tjáningarfrelsið ekki fyrir aðra en þá sjálfa. Pólitískur aðstoðamaður dómsráðherra er ekki embættismaður og þar að auki er hann varaþingmaður og getur ekki síður tjáð sig en þingmenn,“ segir hann.

„Þess utan er þessi aðstoðarmaður ekki að taka nokkra afstöðu í sakamálinu eða reyna að hafa áhrif á rannsóknina heldur aðeins að leiðbeina og upplýsa um helstu atriði sem snúa að sakamálarannsóknum og brýna fyrir mönnum að allir sitji við sama borð í þessum efnum. Aðstoðarmaðurinn á það til að vera truntulegur en stundum er það nauðsynlegt.“