Brynjar svarar Sveini og Gísla fullum hálsi: „Ofur­­hressi sjón­­varps­­maðurinn er ekki ó­­líkur stjörnu­lög­manninum eina sanna“

Sjón­varps­maðurinn Gísli Marteinn Baldurs­son blandaði sér í rök­ræður Brynjar Níels­sonar og Andra Snæs Magna­sonar í gær og sakaði Brynjar um hræsni en þeir síðar­nefndu hafa verið að deila um loft­lags­mál síðast­liðna daga.

Stjörnu­lög­maðurinn Sveinn Andri Sveins­son tók sig síðan til að hjólaði í Brynjar og minnti hann á að þjóðin hefði hafnað honum í kosningum.

Brynjar sem er staddur á Mallorca um þessar mundir hefur tekið sig til og ákveðið að svara þeim báðum í sama pistlinum.

„Sjón­­varps­­maðurinn sí­káti sendi mér pillu á miðli frjáls­­lynda og víð­­sýna fólksins, sem einkum berst fyrir þöggun og úti­­­lokun þeirra sem eru ó­­­sam­­mála þeim. Svona getur til­­veran verið mót­­sagna­­kennd. Glað­­lynda sjón­­varps­manninum finnst skrítið að ég hafi ýjað að fasískri hegðun rit­höfundar úti í bæ, sem vildi að starfs­­menn Moggans beittu þöggunar - og úti­­­lokunar­að­­gerðum vegna við­horfs rit­stjórans í lofts­lags­­málum, þar sem ég hafi greitt at­­kvæði gegn síðasta þungunar­rofs­frum­­varpi, vildi vísa 300 manns af landinu og nýja inn­flytj­enda lög­­gjöf og vildi þar að auki vald­efla lög­­regluna,“ skrifar Brynjar á Face­book.

„Létt­­lyndi sjón­­varps­­maðurinn áttar sig ekki á því frekar en rit­höfundurinn úti í bæ að fas­­ismi er fyrst og fremst hegðun en ekki það að ein­hver er ó­­­sam­­mála manni. Skoðanir um þungunar­rof hafa ekkert með fas­­isma að gera. Það er ekki fasísk skoðun að þegar fóstur er orðið að barni í móður­kviði hafi það ein­hvern rétt. Að vísa fólki úr landi sem hefur lögum sam­­kvæmt ekki heimild til að vera er ekki fas­­ismi eða breytingar á lögum um út­­lendinga í sam­ræmi við lög í Evrópu­löndum. Að veita lög­­reglu svipaðar heimildir og í öðrum löndum til að fram­­fylgja lögum og koma í veg fyrir skipu­lagða glæpa­­starf­­semi er ekki fas­­ismi,“ heldur hann á­fram.

Brynjar segir vissu­lega sé fas­ismi ekki bara hegðun og hugar­far.

„Til er fasísk hug­­mynda­­fræði sem tekur úr sam­bandi réttindi borgaranna gagn­vart yfir­­völdum. Við erum hins vegar með stjórnar­­skrá sem verndar þau réttindi. Við þurfum því ekki að hafa á­hyggjur að því og á­hyggjur mínar beinast að fasískri hegðun margra í frjálsa sam­­fé­laginu, einkum þeirra sem reyna að selja sig sem frjáls­­lynda og víð­­sýna. Þar eru mest á­berandi elítu­liðið úr fjöl­­miðlum og lista-og menningar­­geiranum sem finnst það sjálf­­sögð réttindi að skatt­­greið­endur tryggi af­komu þeirra. Gott ef það eru ekki mann­réttindi.“

„Ofur­­hressi sjón­­varps­­maðurinn er ekki ó­­líkur stjörnu­lög­manninum eina sanna. Voru báðir virkir í Sjálf­­stæðis­­flokknum en þegar þeim var hafnað í próf­­kjöri brast út ein­hver heift sem bara magnast með árunum. Þeir urðu allt í einu svo gáfaðir og rétt­­sýnir. Um það er hins vegar tals­verður á­­greiningur. Það er ljóst að við sjón­­varps­­maðurinn hressi eigum bara eitt sam­eigin­­legt en það er við erum alltaf jafn ung­­legir í út­liti. Það sama verður ekki sagt um stjörnu­lög­manninn.

Það er mikið frelsi að geta fjasað á­byrgðar­­laust í góða veðrinu í Mið­jarðar­hafi á launum frá skatt­­greið­endum meðan vinnu­lúnir rit­höfundar og sjón­­varps­­menn híma heima í kuldanum með kvíða yfir því að þeir muni stikna úr hita innan fárra ára,“ skrifar Brynjar að lokum.