Brynjar svarar grein Bene­dikts: „Köllum þá bara Bensa til að blekkja þá“

Brynjar Níels­son, þing­maður Sjálf­stæðis­flokksins, hefur svarað grein Bene­dikts Jóhannes­sonar, stofnanda Við­reisnar, sem birtist í Morgun­blaðinu í morgun.

Í greininni hæddist Bene­dikt að „Brynjari“ en tekið skal fram að Bene­dikt notaði aldrei fullt nafn Brynjars þó öllum sé aug­ljóst að hverjum pistilinn beindist.

Sjá einnig: Benedikt: Aumingja Brynjar - „Hefði þetta fólk ekki dáið hvort sem er?“

„Nokkrir vinir mínir segjast vera frelsis­unn­endur. Kannski mætti kalla þá frí­hyggju­­menn. Þeim finnst ríkið sí­­fellt vera að skipta sér af því sem því kemur ekki við. Þeir eru nokkrir, en köllum þá einu nafni Brynjar til þess að blekkja þá,“ sagði Bene­dikt í grein sinni og sagði að Brynjar ætti ekki sjö dagana sæla um þessar mundir.

„Honum er meira að segja skipað að vera með grímu á al­manna­­færi (sem þeir sem til þekkja telja raunar til prýði). Hvað kemur honum það við að ein­hver smitist og jafn­vel deyi úr slæmri flensu? Hefði þetta fólk ekki dáið hvort sem er?“

Nú hefur Brynjar skrifað sams­konar grein og birt á Face­book, en greininni er aug­ljós­lega beint að Bene­dikt. Gefum Brynjari orðið:

„Þekkt hefur verið lengi að í hverjum stjórn­mála­flokki eru ein­staklingar sem eiga það sam­eigin­legt að þeim finnst ó­skiljan­legt að þeir gangi ekki alltaf á rauðum dregli, eins gáfaðir og skyn­samir þeir eru. Þegar svo stendur á stofna þeir gjarnan nýjan flokk. Þeir eru nokkrir en köllum þá bara Bensa til að blekkja þá.“

Brynjar heldur á­fram:

„Bensi stofnar flokk kringum sjálfan sig með um það bil eitt mál­efni á stefnu­skrá. Þegar Bensi skynjar að þetta eina mál nýtur tak­markaðs fylgis meðal þjóðarinnar notar hann alla þekkta frasa í sýndar­mennsku sem til eru og stundar yfir­boð eftir hentug­leika. Þegar Bensa er hafnað af kjós­endum í einu kjör­dæmi færir hann sig yfir í annað og mun gera það þar til þjóðin áttar sig á því hvað hann er gáfaður og skyn­samur.“

Brynjar segir að Bensi sé gjarnan „þver­móður mikill“ en samt prinsipplaus. Hann skreyti sig með frjáls­lyndi og frelsi enda sölu­væn­legir frasar.

„Bensa finnst samt að frelsi annarra eigi að miða við hvað honum sjálfum finnst skyn­sam­legt og rétt. Bensi er ráð­stjórnar­maður í eðli sínu og þess vegna er mjög lík­legt að Bensi hrífist að aðild að ESB. Bensi boðar auð­vitað heiðar­leg stjórn­mál og mál­efna­lega rök­ræðu í stað þess að fara í manninn. Bensi er fyndinn og hefur allt til að bera til að vera hinn full­komni stjórn­mála­maður. Bensi skilur því ekki af hverju kjós­endur eru svona vit­lausir eða blindir að sjá þetta ekki.