Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur svarað fyrir pilluna sem hann sendi tónlistarmanninum Bubba Morthens í pistli sem birtist í gær.
Eins og greint hefur verið frá sendi Bubbi ákall til þingmanna um liðna helgi þar sem hann kallaði eftir því að þeir myndu bregðast við árásum fyrirtækisins á Helga Seljan, fréttamann RÚV. Kvartaði hann undan ærandi þögn þingmanna í málinu.
Í pistli sem Brynjar skrifaði og birtist á Vísi í gær fór hann yfir þessi Samherjamál og sendi Bubba svo væna pillu:
„Að lokum vil ég segja við poppstjörnur í eldri kantinum, sem hafa áhyggjur af þögn þingmanna um Samherja, að það þarf öflug fyrirtæki, sem geta gert mikil verðmæti úr auðlindum okkar, til að greiða ykkur um hálfa milljón á mánuði í heiðursskyni til æviloka.“
Þessi ummæli vöktu talsverða athygli eins og Hringbraut fjallaði um í morgun. Nú hefur Brynjar brugðist við þessum viðbrögðum með stuttri áréttingu á Facebook-síðu sinni þar sem hann sendir Bubba aðra pillu.
„Að gagnrýna poppgoðið kallar fram mikla geðshræringu hjá mörgum. Ég var nú ekki að ráðast á Muhamed spámann. En poppgoðið hefur gert sig gildandi í pólitískri umræðu og þarf því að þola gagnrýni og smá leiðbeiningu um hvernig verðmæti verða til. Að vísu hefur framganga goðsins í umræðunni falist í stóryrðum um einstaklinga og félög, einkum í málum sem hann hefur hvorki kynnt sér né hefur vit á. Það hefur alltaf gagnast að etja frægum á foraðið til að afla málstaðnum stuðnings.“