Brynjar Níelsson, aðstoðarmaður dómsmálaráðherra og varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins tók sæti á Alþingi á mánudaginn í fjarveru Guðlaugar Þórs Þórðarssonar umhverfisráðherra.
Brynjar var ekki lengi að valda usla og frammíkölld á Alþingi en hann ákvað að taka til máls um skýrslu Ríkisendurskoðunar um sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka.
Brynjar sagði af og frá að fara setja á fót „mörg hundruð milljón króna“ rannsóknarnefnd eins og minnihluti stjórnskipunar og eftirlitsnefndar vill. Hann sagði að sú nefnd myndi „segja það sama“ og Ríkisendurskoðun.
Í áliti minnihlutans er krafist þess að Rannsóknarnefndin myndi úrskurða um hvort möguleg lögbrot hafi verið framin sem og hæfi Bjarna Benediktssonar, fjármálaráðherra, í málinu. Brynjar benti þingmönnum á að einungis dómstólar skera úr um hvort lögbrot hafi verið framin en ekki „Jón og Gunna“ í einhverri rannsóknarnefnd.
„Ég vil byrja á að taka það fram, þegar svona ferli fer af stað, sem er ákveðið hér á þinginu. Ítarleg greinargerð fjármálaráðherra í kringum það. Sem mig grunar að fæstir hafi lesið sem hafa tekið til máls. Svo kemur niðurstaða Ríkisendurskoðunar um það að það er ekkert í þessu ferli sem varðar fjármálaráðherra eða Bankasýsluna sem gefur okkur tilefni til þess að fara í slíka vegferð sem rannsóknarnefnd er. Þetta er finnst mér augljóst,“ sagði Brynjar.
Er Jón Gunnarsson að „prófa hugvíkkandi efni“ á aðstoðarmanni sínum?
Brynjar og Jóhann Páll Jóhannsson, þingmaður Samfylkingarinnar, rökræddu málið í þaula en sá síðarnefndi spurði hvort Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra hefði verið að „prófa hugvíkkandi efni“ á aðstoðarmanni sínum, eftir fyrri ræðu Brynjars.
Í lokaræðu sinni kom til átaka milli Brynjars og stjórnarandstöðunnar er hann hélt því fram að Ríkisendurskoðandi hafi ekki fundið nein lögbrot. „Hann fór ekki yfir það,“ kölluðu bæði Þórhildur Sunna Ævarsdóttir þingmaður Pírata og Jóhann Páll úr sætum sínum.
„Bara það að tala ekki um það er ekki þar með sagt hann skoði það ekki,“ sagði Brynjar. „Það er ekkert sem gefur honum tilefni til þess að ætla að hér hafi verið einhver brot. Ef menn telja að eitthvað gefur tilefni til þess þá benda þeir á það,“ bætti Brynjar við.
Brynjar spurði hvort þingheimur ætlaði að biðja um rannsóknarnefnd í hver skipti sem „ráðherra gerir eitthvað eða bankasýslan?“
Þórhildur Sunna kallaði þá úr sæti sínu: „Næst þegar ráðherra selur pabba sínum banka aftur þá skulum við ...“ sagði Þórhildur Sunna sem náði að kveikja í Brynjari sem greip orðið.
„Þetta er orðið svo þreytt og lummó að það hálfa væri nóg. Það tekur líka enginn mark á ykkur lengur. Það hlustar enginn á ykkur lengur. Fjölmiðlar hafa ekki einu sinni áhuga á ykkur lengur,“ sagði Brynjar og hækkaði róminn. „Þetta er svo þreytt þras um ekki neitt að meira að segja þjóðin er alveg búin að fá nóg. Ég fullyrði það og ég búinn að fá nóg af ykkur,“ sagði Brynjar að lokum
Hægt er að sjá eldræðu Brynjars í spilaranum hér að neðan.